Skilmálar og afhending

Upplýsingar um fyrirtækið

Augnablik (eigandi Antonía Bergþórsdóttir, kt.160695-2189) / Vesturgata 17, 101 Reykjavík / 866 2633 / augnablikin@gmail.com  

Augnablik áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar þegar greiðsla hefur verið staðfest.

Viðskiptavinur getur fengið vörurnar sendar í pósti eða sótt þær til okkar.

  1. Heimsending

Heimsending er innifalin í verði á öllum vörum nema sérpöntunum. Kjósi viðskiptavinur að sækja vöruna á skrifstofur Augnabliks á Vesturgötu, 101 Reykjavík, gengur það að sjálfsögðu líka.

Pantanir með heimsendingu eru sendar heim að dyrum með Íslandspósti, sé ekki unnt að taka við sendingunni þarf að sækja hana á næsta pósthús.

 

  1. Sækja

Veljir þú að sækja pöntun frekar en að fá hana senda getur afgreiðsla tekið 1-2 virka daga. Þú færð tölvupóst um leið og pöntunin er tilbúin til afhendingar. 
 

Afhending pantana fer fram á  skrifstofum Augnabliks á Vesturgötu 17, 101 Reykjavík. Pantanir eru afhentar og afgreiddar frá kl 12-17 alla virka daga, eða samkvæmt samkomulagi. 
Smelltu hér til að sjá staðsetningu í Google Maps.

Viðmið um afhendingu sóttra pantana: Pantanir sem berast eftir klukkan 12 á virkum dögum eru til afhendingar næsta virka dag milli kl. 12-17.

Pantanir sem berast fyrir kl. 12 eru að jafnaði tilbúnar til afhendingar samdægurs, eftir kl 14.

Verð og verðbreytingar

Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um villur. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða skráningar.
Augnablik áskilur sér rétt til að fella niður pantanir og endurgreiða séu villur í verðum þegar pantað er.

Að skipta og skila vöru

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því gefnu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Sýna þarf fram á kvittun fyrir vörukaupunum.

Skil geta farið þannig fram að kaupandi skili vöru á skrifstofur Augnabliks á Vesturgötu 17, 101 Reykjavík, eða sendir okkur vöruna með pósti á eigin kostnað. 

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðslu ef hennar er krafist.

Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.