Að skipta og skila vöru

Að skipta og skila vöru

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því gefnu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Sýna þarf fram á kvittun fyrir vörukaupunum.

Skil geta farið þannig fram að kaupandi skili vöru á skrifstofur Augnabliks á Vesturgötu 17, 101 Reykjavík, eða sendir okkur vöruna með pósti á eigin kostnað. 

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðslu ef hennar er krafist.

Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.